18júní

Myndir

Halló! Hér koma nokkrar myndir af reunioninu:) Set linkinn einnig hér sem tengil á síðuna. Ef þið eruð með tengla á myndir endilega látið þá fylgja í kommenti og við getum bætt þeim inn!
http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=19907292&uid=11231820
18. júní 2008 klukkan 20:15
Nefndin
2 athugasemdir
13júní

Stóri dagurinn

Jæja þá er loksins komið að þessu. Það stefnir í að við verðum á milli 40 og 50 manns og því stefnir í rosa stuð! Planið hefur breyst örlítið síðan síðast og hljómar nú svona:

12:00 - Mæting í Gaggann (rútan kemur upp í Gagga á sama tíma svo fólk getur geymt dótið sitt þar) Gengið verður inn í Gaggann um norðurinnganginn

14:00 - Bjórkynning hefst

15:30 - Lagt af stað uppí Valhöll (sem er í Vaðlaheiðinni á móti bænum)

16:00-17:30 - Farið í leiki

18:00 - Grillveisla hefst

20:00 - Komið aftur að Gagganum

Pásan fræga..

22:00 - Villt partý á Mongó Sportbar þar sem hagstæð tilboð verða á barnum


Fyrri plön varðandi áfengisleysi hafa einnig breyst og því er ekki nauðsynlegt að mæta með eigið áfengi fyrir daginn. Bjórinn verður sem sagt í boði
Glottandi

Svona til upphitunar fyrir stóra daginn verður svo óformlegur hittingur á föstudagskvöldinu. Stefnt er að því að hittast kl. 21:00 á efri hæðinni á Cafe Amour og væri gaman að sjá sem flesta þar líka.

Einnig hefur verið ákveðið, svona fyrir þá sem vilja, að minnast fallinnar vinkonu okkar og bekkjarsystur með því að hittast kl. 11:30 á laugardagsmorgninum í kirkjugarðinum, þar sem við munum leggja blóm á leiði Dýrleifar sem fór frá okkur fyrir tæpum fjórum árum.

Að lokum viljum við svo minna ykkur öll á að klæða ykkur eftir veðri á laugardaginn :)

Hlökkum til að hitta ykkur!


Kveðja, Nefndin

Ps. minnum svo á símanúmer nefndarmeðlima hér til hliðar ef einhverjar spurningar vakna..
13. júní 2008 klukkan 00:22
Nefndin
8 athugasemdir
10júní

Komnar "nýjar" myndir í albúmiđ

Hæ hæ!
Erum búnar að skanna inn fullt af myndum síðan í Gagganum og setja í myndaalbúmið.

Hver man ekki eftir þessum skvísum??


En þessari árshátíð??...


Kíkið á meira í myndaalbúminu;)
10. júní 2008 klukkan 23:45
Nefndin
3 athugasemdir
02júní

Allt ađ gerast!

Við viljum byrja á að minna ykkur á að frestur til að skrá sig á Gaggareunion rennur út á miðnætti á morgun, þriðjudaginn 3. júní, þannig að nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á þessa glæstu endurfundi ’82 árgangsinsSvalur

Einnig viljum við vekja athygli ykkar á því að bekkjamyndirnar eru byrjaðar að streyma hér inná síðuna ásamt bréfinu góða sem við fengum við útskriftina úr Gagganum á sínum tíma. Ef eitthvert ykkar liggur svo á myndum af X-D og X-E bekknum væri frábært ef þið hafið tök á að senda þær á netfangið

 helgia06@ru.is


Svo fer alveg að koma að þessu svo hið eina rétta í stöðunni er að sjálfsögðu að fá smá nostalgíukast yfir gömlu myndunum, skrá sig á Reunion-ið, og mæta svo með partýskapið þann 14. júní  Brosandi

Kær kveðja, Nefndin

 

 

02. júní 2008 klukkan 23:48
Nefndin
24 athugasemdir
26maí

Framlenging

Eins og þið vitið þá ætti frestur til að skrá sig að renna út í kvöld. Vegna fjölda áskorana hefur hins vegar verið ákveðið að framlengja frestinn til kl. 23:59 þann 3. júní. Það er að sjálfsögðu mun eðlilegri frestur þar sem mörg okkar hafa aðeins meiri pening á milli handanna svona rétt eftir mánaðamót. Glottandi

Upplýsingar um reikning til að leggja inn á má sem fyrr sjá hér að neðan.

Svo hlökkum við bara til að sjá ykkur öll!!

Kveðja,  Nefndin
26. maí 2008 klukkan 18:15
Nefndin
5 athugasemdir
20maí

Smá viđbót

Já og endilega setjið nafnið ykkar í skýringu þegar þið leggið inn peninginn svo ekki fari á milli mála hver leggur inn :)
20. maí 2008 klukkan 13:40
Nefndin
Engin athugasemd
19maí

Skráning

Hæhæ,

Jæja nú er komið að því! Planið, sem er svo gott sem klárt, inniheldur meðal annars skoðunarferð um Gaggann, stórskemmtilega leiki, grillveislu og fleira gott. Gróf dagskrá hljóðar því eitthvað á þessa leið:

12:00 Mæting í Gaggann (Rútan kemur upp í Gagga á sama tíma svo fólk getur geymt dótið sitt þar)

14:00 Bjórkynning hefst

15:30 Lagt af stað upp á Hamra

16:00-17:30 Farið í leiki

18:00 Grillveisla hefst

20:00 Komið aftur að Gagganum

Make-up pása til 22:00 ;)

22:00 Mæting á Mongó Sportbar þar sem hagstæð tilboð verða á barnum

Verðið fyrir þessa dagskrá er 4.500 krónur á mann. Þar sem ekki er víst að allir kjósi að drekka hefur verið ákveðið að hafa ekkert áfengi inni í þessu verði, en þeir sem það vilja mega að sjálfsögðu taka með sér flösku eða tvær af góða vökvanum Hlæjandi

Þeir sem ætla sér að mæta eru vinsamlegast beðnir um að leggja 4.500 krónur inn á meðfylgjandi reikning sem gjaldkeri nefndarinnar Helga Björg stofnaði í þágu hátíðarinnar. Frestur til að skrá sig rennur út á miðnætti á mánudaginn 26. maí. Hér koma svo upplýsingar um reikninginn:

1121-26-500082

kt. 250682-3449


Í lokin viljum við svo biðja um smá upplýsingar.

Það hafa komið upp smá vandamál með að fá bekkjarlistana frá því í 10. bekk og því biðjum við ykkur um að setja í comment hér að neðan í hvaða bekk þið voruð svo hægt sé að setja saman listana.

Einnig væri gaman ef eitthvert ykkar man hvað Gaggalagið frábæra heitir og enn betra ef einhver á það.

Og að lokum væri frábært ef þið eigið einhverjar myndir frá Gaggatímanum sem þið væruð til í að senda okkur, sem hægt væri að setja inn á síðuna. Ef þið eigið slíkar myndir, endilega sendið þær á netfangið helgia06@ru.is

 

Kær kveðja, Nefndin

19. maí 2008 klukkan 22:50
Nefndin
38 athugasemdir
16maí

Update!!!

Jæja jæja... Allir orðnir spenntir!!??!!
Nefndin hittist í gær og ákveðið var að standa við setta dagsetningu, 14 júní. Það eru því miður alltaf einhverjir sem komast ekki hvaða dagsetningu sem valin verður.
Sett var á fullt öll skipulagning og skemmtilegheit.
Á mánudaginn verður svo sendur póstur á alla þar sem m.a. dagskrá, verð (og upplýsingar um hvar eigi að leggja inn) og fleira. Endilega svarið sem fyrst þar sem rétt tæpur mánuður er í herlegheitin!!!!

Nefndin ;)

16. maí 2008 klukkan 11:25
Nefndin
12 athugasemdir
02apríl

Reunion!!!

Sæll öll,

Nú er komið að því, 10 ár liðin frá útskrift úr Gagganum og því kominn tími á að halda gott reunion. Skipulagning er komin vel á veg og er óhætt að segja að þetta verður stórbrotið í alla staði!!
Dagsetningin er
14. júní 2008 og reiknum við með að dagskráin hefjist um klukkan 15.00 með heimsókn í Gaggann.

Nánari dagskrá verður birt síðar.

Hlökkum til að sjá ykkur öll aftur!
Brosandi

Kveðja, Nefndin
02. apríl 2008 klukkan 20:51
Nefndin
43 athugasemdir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...